Grænahlíð fjölskyldumiðstöð
Okkar markmið er að hjálpa fjölskyldum að skapa bestu mögulegu aðstæður fyrir börn og ungmenni til þess að blómstra og njóta farsældar í sínu lífi
Um Grænuhlíð
Grænahlíð er sérhæft fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0 til 25 ára og fjölskyldur þeirra. Í Grænuhlíð starfar þverfaglegt teymi meðferðaraðila sem leitast við að veita fjölskyldum í heild og einstaklingum innan hennar sérhæfða og heildræna meðferð óháð aldri. Lögð er áhersla á áfallamiðaða nálgun og tengslaeflandi meðferð fremur en formlegar greiningar og lyfjagjöf þó slíkt geti verið hluti að stærri meðferðaráætlun.
Fagfólk Grænuhlíðar veitir margvíslega meðferð og inngrip byggð á nýjustu þekkingu og rannsóknum varðandi áfallamiðaða nálgun og tengslaeflandi meðferð. Meðferðar nálgun okkar tekur mið af áhrifum áfalla og umhverfis á þroskaferil og heilaþroska barna. Áhersla er lögð á snemmtæk inngrip, þverfaglega- og þverstofnanalega samvinnu til að efla farsæld barna.
Sérstaða Grænuhlíðar er sú að ekki er aðeins litið á barnið/ungmennið sem einstakling, heldur sem hluta af stærri fjölskyldueiningu og þess vegna teljum við mikilvægt að meðferðaraðilar barna og fullorðinna starfi saman undir sama þaki. Við teljum þessa nálgun mikilvæga í þágu farsældar barna og ungmenna.
Aðstaðan